Færsluflokkur: Bloggar
30.9.2017 | 18:31
Spámaður í föðurlandi
Síðast liðinn fimmtudag hlustaði ég á lærðan fyrirlestur hjá Miðaldastofu um einstakt framtak Guðmundar góða Arasonar við að vígja vatn. Ég þekki lítið til Guðmundar góða fram yfir það sem ég hef lesið í Sturlungu og fannst spennandi að læra um trúarlegu hliðina á starfi hans, sem Sturlunga fjallar lítið um, að minnsta kosti ekki með þeim hætti að ég skildi. Ég hef oft velt fyrir mér hvað lá á bak við auknefnið góði.
Margaret Cormack prófessor emerita í Háskólanum í Charlottesville í Suður Dakóta hélt fyrirlestur um hvaða hugmyndir lágu að baki starfi Guðmundar góða við að vígja vatn. Hún hélt því fram að þetta framtak hans væri einstakt og ætti sér ekki hliðstæðu í öðrum löndum. Eins og allir á vita er fjöldi vatnsbóla á Íslandi kennd við Guðmund góða og fylgir saga um að hann hafi blessað þau.
Margaret Cormack sagði frá hugmyndum Guðmundar sjálfs eins og sagan segir að þau birtast í varnarræðu sem hann flutti yfir erkibiskupi í Þrándheimi. Guðmundur taldi þyrfti að verja verja gjörðir sínar, því það hafði verið fundið að því, að vígslur hans og fyrirbænir brytu í bága við það sem kirkjan taldi rétt og viðeigandi.
Hugmyndir Guðmundar eru merkilegar. Hann heldur því fram að í raun sé allt vatn heilagt, það hafi helgast af því er Jesús Kristur steig niður í ána Jórdan þegar hann var skírður af Jóhannesi skírara. Hann segir að með með blessun sinni sé hann einungis að sýna fram á þessa staðreynd.Heillagleikinn komi frá þeim sem honum séu æðri. Það er Jesús sjálfur.
Það var gaman fyrir mig, sem alin er upp í Lúthersku,að hlusta á tungutak Kaþólskunnar, sem er full af mystik. Það er eitthvað heillandi við kraftaverk.
Verst finnst mér þó, að ég er ekki viss um að ég hafi skilið fræðikonuna nógu vel, trúarlegt fræðimál er ekki mín sterka hlið, hvað þá á ensku. Þó er ég sannfærð um að við þurfum á þessum skilningi að halda ef við ætlum að skilja fortíð okkar, sem er mikilvægt.
Reyndar er vert að geta þess að allt efni sem Margaret Cormack hafði rannsakað var ritað löngu eftir dauða Guðmundar en það er samt hluti af okkar sögu og því merkilegt fyrir okkur Íslendinga.
Að lokum langar mig til að þakka Miðaldastofu fyrir skipulagið og efnisvalið á fimmtudags- fyrirlestrunum, sem eru opnir öllum og ég hef nú notið að sækja í fjögur ár, held ég, en er ekki viss. Tíminn líður hratt.
Að lokum. Ég heft það á tilfinningunni að við kunnum ekki nógsamlega að meta Guðmund góða og allt þetta vatn sem hann blessaði handa okkur. Ég hugsaði því til máltækisins:Enginn er spámaður í eigin föðurlandi.
Myndin tengist ekki efninu, aðeins leikur með liti.Tekin af pistlahöfundi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.9.2017 | 22:50
Óvinur fólksins. Sannleikurinn og lýðræðið
Í fyrradag fór ég í leikhús, sá Óvin fólksins eftir Henrik Ibsen. Hef ekki séð þetta verk áður en líklega hlustað á það í útvarpi. Í leikgerð Þjóðleikhússins er það flutt í einni lotu, ekkerkt hlé. Ekki einu sinni pissustopp.
Nútíminn og ég
Þegar maður er kominn á minn aldur, er ýmislegt í Nútímanum sem manni fellur ekki við. Nútíminn er líka búinn að skóla mann til, svo maður er ekki stöðugt að tala um hvað manni finnst innst inni. En í þessum pistli ætla ég að segja sannleikann. Það er í anda verksins, sem fjallar um sannleikann og hugrekki til að láta ekki kúga sig til að segja ósatt.
Það sem mér fellur ekki við nútímaleikhús er tilhneigingin til að laga leikritin til, matreiða þau svo allir skilji örugglega hvernig þau vísa inn í samtímann. Mig langar til að vinna það verk sjálf, skoða hvernig 19. aldar fólkið sá sinn raunveruleika, túlka það og bera saman við pólitík dagsins í dag. En eins og ég sagði fyrr, er Nútíminn búinn að skóla mig til, hver vill endalaust fá á sig,að hún eða hann, hafi alist upp í torfbæ og skilji ekki nýja tíma.
En mér finnst gaman að fara leikhús og hef það fyrir prinsipp að láta mér ekki leiðast. Tími ekki að borga fyrir það að láta mér leiðast.
Sýningin
Mér fannst gaman, leikararnir stóðu sig vel og sumir frábærlega. Í leikritinu er fjallað um sannleikann, ábyrgð einstaklingsins og tjáningarfrelsi. Og síðast en ekki síst, er fjallað um hvað gerist þegar árekstrar verða á milli þess sem sannleikurinn leiðir í ljós og hagsmuna, einstaklinga og samfélags.
Ég tók strax eftir að aðstandendur verksins hafa lagt mikið á sig til að leikritið tali beint inn í okkar tíma.
Mér féll ekki leikmyndin, fannst hún stela senunni og um leið trufla frásögnina um fólkið í þessu þorpi sem vildi umfram allt græða á heilsulindinni sinni þótt hún væri eitruð. Mér fannst líka afkáralegt að fylgjast með Stockmann fjölskyldunni í endalausum pikknikk undir verksmiðjuvegg eða raflínumastri. En ég skildi alveg hvert var verið að fara. Í nútímaleikhúsi er það líka í tísku að flysja burt allan óþarfa og tálga fram hinn eiginlega boðskap verksins, að mati leikstjóra. Það virðist þurfa að lagfæra orðræðuna til þess að ekki fari fram hjá neinum hvernig hún samsvarar orðræðu dagsins í dag. Þetta var vel gert en passaði mér ekki. Mér finnst eins og það sé verið að stappa ofan í mig matinn. En ég er ekki barn lengur, heldur komin á seinna og kannski seinasta mótþróaskeið.
Sumt var þó greinilega til bóta og að mínu skapi, til dæmis var skemmtilegra að fjölga kvenhlutverkum.
Efni verksins
Aftur að innihaldi verksins. Tómas Stockmann læknir hefur komist að því að vatnið heilsulindunum er eitrað, óhæft innvortis sem útvortis. En það eru einmitt þessar heilsulindir sem fólkið í bænum bindur vonir sínar um bætt líf, bættan fjárhag, við. Það sem verra er, er að mengunin stafar af úrgangi frá verksmiðjunni sem lengi hefur verið undirstaða atvinnu margra bæjarbúa.Bæjarstjórinn Petra Stockmann systir læknisins, en er jafnframt forstjóri heilsubaðanna, vill þagga málið niður. Þetta yrði reiðarslag fyrir bæinn, allt of dýrt. Í fyrstu bindur Tómas vonir við að Blaðið birti greinargerð hans um málið en sú von bregst, þegar kemur í ljós að útgefandi blaðsins frú Aslaksen treystir sér ekki að fjalla um mál sem er dæmt til að verða óvinsælt af fólkinu.Það er haldinn fjöldafundur og Tómas lýsir yfir efasemdum sínum um lýðræðið og segir að hann þurfi ekki á stuðningi fólksins að halda, hann sé sterkastur einn.
Niðurstaðan er þannig frekar dapurleg miðað við okkar tíma, sérstaklega fyrir það fólk sem treystir á lýðræði. En þá er gott að hverfa aftur til upphafsins og muna að þarna talar 19. aldar rithöfundur, sem er samtímamaður Nietzsches, á tímum þegar hugmyndin um ofurmennið svifu yfir vötnunum og þóttu boðlegar. Henrik Ibsem var fæddur 1828 og verkið En folkefiende kom út 1882. Nietzsche fæddist 1844 og verkið Also sprach Zarathustra kom út á árunum 1883 til 1886.
Ég veit ekki hvort ég er tilbúin til að fyrirgefa Ibsen neikvæðni hans gagnvart lýðræðinu. Þetta eru varasamar skoðanir.Það hefur sýnt sig. En í fyrrakvöld í leikhúsinu kaus ég að einbeita mér að því sem ég tel aðalatriði verksins, hinni eilífu klemmu sem sannleikurinn er í vegna hagsmunaárekstra við einstaklinga,almenning og við þá sem bara vilja græða.
Það var gaman að horfa á þetta verk af því það var svo vel leikið, við eigum frábæra leikara. Ég saknaði þess að hafa ekki hlé. Af hverju eru allir alltaf að flýta sér? Leikhús er rammi um það sem fram fer á sviðinu og inn í þeim ramma eru samskipti leikhúsgesta og að dekra svolítið við sjálfan sig. Meltingin byrjar þar.
Myndina tók ég traustataki á netinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.9.2017 | 22:43
Umkringd af fíflum
Ég hef þýtt Omgiven av idioter með umkringd að fíflum en það má svo sem þýða idioter með hvaða niðrandi orði um gáfur fólks menn kjósa sér.
Í leit minni af nýjum krimma, ég er alltaf með spennubók til hliðar við annars konar lesningu, rakst ég á nafnið Thomas Eriksson ofarlega á vinsældalista. En þegar til átti að taka, var hann frægastur fyrir bókina, Omgiven av idioter. Það er ekki krimmi, heldur handbók um samskipti, einkum á vinnustað. Ég ákvað að lesa hana fyrst.
Í upphafi bókar lofar hann því að hún færi lesandanum lykilinn að því að skilja þann sem hann skilur ekki og auðveldi þannig samskipti.
Þessi lykill er flokkunarkerfi, sem byggir á rannsóknum. Og þótt ég sé í prinsippinu á móti því að flokka fólk, les ég áfram.
Það er sem sagt hægt að flokka fólk í fjóra flokka út frá því hvað sé virkasta aflið á bak við gerðir þess.
- Rautt: Keppnisfólk sem er fljótt að hugsa og taka ákvarðanir og sækist fyrst og fremst eftir því að vera í fremstu röð. Komast til áhrifa.
- Gult: Hugmyndaríkt, skapandi og fljóthuga fólk sem nærist á því glansa, baða sig í aðdáun annarra.
- Grænt: Félagslynda fólkið, sem nærist af því að vera gagnlegt og eiga góð samskipti. Að vera vinsælt.
- Blátt: Fólk sem vill gera rétt á grundvelli röklegrar greiningar á málavöxtum. Vinsældir, keppni eða aðdáun annarra er aukaatriði. Fyrir bláan einstakling skiptir tíminn sem það tekur að taka ákvörðun, ekki máli.
Þótt ég sé, eins og fyrr sagði, á móti því að flokka fólk, eru svona flokkunarkerfi ótrúlega áhrifarík. Fyrr en maður veit af, er maður byrjaður að skella fólki í ákveðinn flokk, í þessu tilviki er þetta spurning um lit. Þetta stemmir ekki hugsa ég, Bjarni Benediktsson er ekki blár heldur rauður. Ég kann því illa, ég er svo vön að hugsa út frá öðru flokkunarkerfi, litum flokkakerfisins.
Mig langar til að útskýra hvers vegna mér finnst rangt að flokka fólk. Í mínum huga er manneskjan eitthvað svo miklu meira en það sem nokkurt flokkunarkerfi nær til og umfram allt er hún gædd sjálfstæðum vilja og ræður gjörðum sínum. Ekki eins og epli eða appelsínur sem ráða engu um hver þau eru. Í hvert skipti sem ég stend mig að því að afgreiða fólk út frá kategoríum, slæ ég á fingurinn á mér.
Það er þó eitt sem er gott við flokkunarkerfi Thomas Erikssons, hann skoðar hvaða gildismat liggur að baki ákvarðanatöku fólks, á hverju nærist það.
Mér fannst bókin ekki standa undir því loforði höfundar að lestur hennar hjálpaði mér til að skilja fólk sem ég á erfitt með að skilja. Líklega hef ég aldrei trúað því.
Nú er ég samt komin á rétta slóð, farin að lesa spennusögu eftir þennan sama höfund, Vanmakt. Hún lofar góðu og það var gott að ég var búin að setja mig inn í fræðin, ein af aðalpersónum bókarinnar er hegðunarfræðingur sem leggur litakerfið, rauður, gulur, grænn og blár, til grundvallar við að leysa mál.
Meira um þá bók síðar.
Bloggar | Breytt 18.9.2017 kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2017 | 18:49
Er plastumræðan platumræða?
Ég flokka rusl og tel það ekki eftir mér. Mér finnst ekki nema sjálfsagt að gera það litla sem ég get til að vernda náttúruna. Ég hef í mörg ár ýmist tekið með mér innkaupapoka eða bakpoka þegar ég kaupi inn.
Ég þori ekki annað en taka þetta fram vegna þess sem hér fer á eftir.
Ég hef engar efasemdir um að það á að takmarka plast, rökin fyrir skaðsemi þess hafa rækilega verið sönnuð. En er það nóg að við sniðgöngum plastpoka? Nær öll vara sem ég kaupi er innpökkuð í plast og sumt svo rækilega að kaupandinn getur ekki einu sinni fengið að skoða vöruna. Þetta segi ég vegna uppsafnaðrar gremju þegar ég þarf að kaupa mér "earphones."Þetta var útúrdúr. Sjampóið er í plastbrúsum og uppþvottalögurinn sömuleiðis. Leikföngin eru úr plasti og pökkuð inn í enn meira plast. Meira að segja ryksugan er úr plasti en ég fékk hana óinnpakkaða. Þetta voru bara dæmi, ég hef meira að segja átt bíl úr plasti. En af hverju er ég að telja þetta upp? Það geri ég vegna þess að í flestum tilfellum finnst ekkert val og þess vegna er ég sem neytandi í erfiðri stöðu ef ég ætla að beita mér sem þrýstiaðli.
Neytendur vilja gjarnan forðast vöru sem er skaðleg náttúrunni, það sýna viðbrögðin gegn gegndarlausri plastpokanotkun. En við virðumst sitja föst þar. Hvergi hef ég séð merki þess að framleiðendur séu að endurskoða framleiðslu sína og bjóði vörur í umhverfisvænni umbúðum eða náttúruvænu efni. En ég fylgist náttúrlega ekki með öllu og það myndi bara gleðja mig, ef ég hef á röngu að standa. Horfið bara í kring um ykkur á heimili ykkar.
Mín skoðun er sú að það eigi að fara með plast eins og öll önnur eiturefni. Stjórnvöld þurfa að setja reglur, banna eða a.m.k. takmarka sölu á því sem er hættulegt. Þetta er stórt mál og því enn brýnna að setja sér markmið og finna leið. Sem betur fer eigum við mikið af vel menntuðu fólki sem er fært um að vinna að slíkum málum.
Auðvitað kostar þetta eitthvað en er hægt að verja peningunum betur en nýta þá í þágu náttúruverndar? Baráttan gegn plasti á sem sagt ekki bara að vera neytendamál, hún á líka að vera pólitísk og þannig fyrst og fremst kosningamál.
Það er verst hvað stjórnmálamenn og þar af leiðandi stjórnmálaflokkar hugsa skammt. Þeir þurfa að læra að hugsa í öldum og árþúsundum í stað fjögurra ára.
Myndin er af höfundi
Hana tók E.Ó.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.9.2017 | 18:49
Sveitin kvödd
Að minnsta kosti einu sinni á ári heimsæki ég æskustöðvarnar, Norðurdal í Breiðdal. Ég heimsæki ættingjana, landslagið og eigin minningar. Í þetta skipti var veðrið gott, flesta daga skein sólin en þegar þokan læddist inn var veður svo milt að hún var næstum heit. En það var samt einhver skuggi yfir þessari heimsókn, í öllum fréttum var fjallað um framtíð bænda, sem í mín eyru hljómar frekar sem fortíð, a.m.k. sumra bænda.
Ég er reyndar ekkert óvön þessari umræðu, hef fylgst með henni eins lengi og ég man eftir mér. En í þetta skipti var það öðru vísi, bæði vegna þess hvar ég var stödd og vegna þess að nú blasir við að gamla sveitin mín, sem er fjárræktarsvæði fari úr byggð. Það eru nefnilega takmörk fyrir því hversu mikið er hægt að grisja byggð svo hún lifi af.
Mig langar að rifja upp umræðuna um framtíð bænda. Þegar ég man fyrst eftir mér var enn sjálfsþurftarbúskapur í Breiðdal. Búskapur var blandaður, sem þýðir að það alls staðar voru kýr,sauðfé, hestar, hænur, að ógleymdum hundum og köttum. Heima hjá mér voru líka gæsir. Stór hluti afurðanna var nýttur til heimabrúks, einungis sauðfjárafurðir voru seldar á markaði. Auk þessa voru ræktaðar bæði rófur og kartöflur. Innleggið frá sláturtíðinni þurfti að nægja fyrir því sem var keypt. En nútíminn kom til okkar hægum skrefum.
Faðir minn fylgdist vel með framförum í landbúnaði sagði að eina leiðin til að halda í við aðra væri að stækka búið. Í nokkur ár gekk lífið út á vinnu við nýræktun. Tæknin kom hægt, fyrsta heyvinnsluvélin var hestasláttuvél, því næst kom rakstrarvél. Pabbi fór hægt í þetta,næst kom minnsta dráttarvél á markaði, Farmal Cup, sem hann keypti í samvinnu við annan bónda. Þetta var eins og að elta endann á regnboganum. Hið auðvelda og góða líf var rétt í augsýn, alltaf kom ný tækni sem átti að létta manni þrældóminn.
Kjör sauðfjárbænda bötnuðu hægt. Athugulir bændur tóku eftir að væerðlag búvara var þannig að miklu betra vara að framleiða mjólk og það gerðu þeir. Um það leyti sem ég hleypti heimdraganum var þó enn enginn uggur í fólki, það var meira að segja farið að tala um að leiðrétta það misrétti sem landsbyggðarbörn bjuggu við og gera þeim kleyft að ljúka námi í heimabyggð.
Það hefur þó ýmislegt verið reynt og oftar en ekki bæði lán og ráðgjöf í boði frá "ábyrgum" aðilum. Verst af öllu var þó refa- og minkaræktin. Ég var sem betur fer svo heppin að engir nákomnir bitu á það agn.
En til hvers er ég að skrifa þetta? Undirstrikar það ekki bara að landbúnaður á Íslandi er vonlaus? Ég veit það ekki, ekki kann ég lausn. Mér sem einu sinni sveitakonu, sem kaupi mat í verslunum sem áður var unninn heima, finnst að það hafi meira verið hugsað um magn en gæði. Ég kenni milliliðum um sem kunna ekki með mat að fara.
Auk þess hugsa ég, höfum við efni á að hafa landið ekki í byggð. Ef það er eitthvað sem okkur vantar ekki, þá eru það fleiri eyðibýli.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2017 | 16:54
Sígild lesning:Håkon Nesser
Ég hef ekki bara verið að lesa/hlusta á Karl Ove Knausgård, sem er verkefni út af fyrir sig, sex bækur, ég er stödd í þriðju bók. Ég hef líka verið að lesa aðra höfunda. Ég er ég nýkomin með nýja bókaveitu og rifja nú upp gömul kynni við höfunda sem ég fylgdist betur með, þegar ég hafði augun mín.
Håkon Nesser (f. 1950) er einn af mínum uppáhald höfundum. Ég veit ekki hvernig er best að flokka hann. E.t.v. er þetta sá sænski höfundur sem líkist Arnaldi Indriðasyni mest.
Håkan Nesser er best þekktur fyrir bækur sínar um rannsóknarlögreglumanninn kommissar Veeteren. Eftir þeim bókum hafa verið gerðir vinsælir sjónvarpsþættir. Ég er þó hrifnust af bókum hans, þar sem Gunnar Barbarotti rannsóknarlögreglumaður er í aðalhlutverki, ég kann svo vel við þessa persónu.
Nú,á þessu sumri hef ég lesið/hlustað á tvær bækur eftir Nesser, Maskarna på Carmine Street (2009), sem gerist í New York og Eugen Kallmanns ögon (2016) sem gerist í bænum K- í Svíþjóð.
Fyrst örstutt um Maskarna på Carmine Street. Bókin gerist í New York. Evrópsk hjón flytja þangað eftir að dóttur þeirra hefur verið rænt. Hann til að vinna sig út úr sorginni, hún trúir aftur á móti að barnið lifi, hún vonar. Hann er rithöfundur og hún myndlistarmaður og að nafninu til halda þau áfram við vinnu sína en líf þeirra hefur umturnast.
Þetta er einkennileg bók. Hefst sem ástarsaga en endar sem glæpasaga og í grófasta lagið miðar við sögur Nesser. Ég las bókina tvisvar til að átta mig á henni og sé ekki eftir því.
Eugen Kallmanns ögon er gamaldags spennusaga. Hún gerist í kringum unglingaskóla í bænum K- í Norður Svíþjóð (uppskáldaður bær). Leo Berger, miðaldra grunnskólakennari er í alvarlegri lífskrísu, hann hefur nýlega misst konu sína og dóttur í ferjuslysi. Hann ákveður að skipta um umhverfi. Hann flytur frá Stokkhólmi til K-, þar sem hann fær stöðu. Dularfullir atburðir gerast og hópur kennara tekur sig saman um að leysa gátuna. Reyndar eru enn fleiri, sem tengjast skólanum að vinna að hinu sama.
Þetta er einstaklega skemmtileg bók að lesa, ekki síst vegna þess hversu skólalífinu er vel lýst og hvað persónur eru vel mótaðar. Það er ekki undarlegt, því þarna er Nesser á heimavelli, hann var kennari í unglingaskóla í yfir 20 ár. Það er líka gaman að sjá að höfundur hefur lagað málfarið að því að láta söguna vera gamaldags, stundum dálítið uppskrúfað og lært. Sundum fannst mér Bo Balderson bregða fyrir og kunni því vel.
Við ykkur lesendur mínir, ætla ég að segja þetta. Ef þið hafið ekki lesið Nesser og hafið gaman af spennusögum, leitið hann uppi og lesið hann. Hann kann ekki bara að skrifa spenandi bækur, stíll hans er heillandi. Auk þess á hann erindi, því ekki veitir ekki af að heyra rödd sem tekur upp málstað húmanisma og mannkærleika.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.8.2017 | 22:12
Bölvaður ef þú gerir það, bölvaður ef þú gerir það ekki
Það kannast sjálfsagt flestir við að hafa heyrt talað um sleifarlagið á götunum í borginni og því ætla ég ekki að fara nánar út í það hér. Ég ætla þess í stað að ræða um það sem borgin hefur gert í sambandi við göngu- og hjólastíga. Þótt enn sé þar langt í land, eiga þeir /þau sem stýra gatnaframkvæmdum þakkir skilið. Og þá sérstaklega fyrir stefnumörkun í þeim málum.
Reyndar þekki ég fólk sem bölsótast yfir þessu og finnst öll vinna við göngu- og hjólastíga vera á kostnað lagfæringa á götum og tala um gæluverkefni í því sambandi.
Mér finnst aftur á móti ekki nóg að gert, hjólreiðar hafa stóraukist og eiga eftir að aukast enn. Ég er sérstaklega með efasemdir um hugmyndir að það sé fullgott fyrir hjólafólk að hjóla á gangstéttum, sem mér finnst hvorki boðlegt fyrir það né gangandi vegfarendur.
Ég veit að gangandi fólk er oft hrætt og óöruggt gagnvart hjólafólki, sem ég skil vel. En mér sem hjóla meira en ég geng, finnst gangstéttirnar varasamar vegna þess að þær eru og oft í ömurlegu ástand og beinlínis hættulegar fyrir hjólaumferð. Það að auki er engin virðing borin fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og oft, því miður oftast, er gengið illa frá gangstéttum, þar sem þar sem unnið er að byggingaframkvæmdum. Auðvitað ættii að ganga frá því í útboðum ekki sé gengið á hlut þessa hóps og setja frá því sem skyldu gangstéttir séu í góðu lagi .
Líklega hljómar þetta einsog nöldur en í hjólatúr mínum í dag á milli bæjarhluta, hugsaði ég samt hlýtt til þeirra sem lengt hafa hjólastíga. Þegar ég kom að framkvæmdasvæðinu við Klambratún, sem mikið hefur verið bölsótast yfir hugsaði ég. Bölvaður eru ef þú gerir það, bölvaður ertmef þú gerir það ekki. Þetta er klemman sem gatnagerðarmenn standa frami fyrir. Um leið og unnið er að umbótum, skapast vandræði. Og svo er aldrei hægt að gera öllum til hæfis.
En ég vona að við hættum að hugsa um bílafólk og hjólafólk sem andstæðinga.
En mikið var hjólaveðrið gott í dag. Og dásamleg tilfinning fyrir mig, að vera aftur farin að hjóla, nýkomin úr aðgerð á mjöðm.
Myndin er frá framkvæmdum á Klambratúni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2017 | 18:39
Þjóð meðal þjóða : Vegagerð
Hvenær ætla Íslendingar að verða eins og annað fólk og gera nauðsynlegar umbætur í vegamálum? Gera vegakerfið sambærilegt við það sem gerist hjá öðrum þjóðum. Þjóðum sem við berum okkur saman við? Hvernig getur staðið á því að við, þessi ríka þjóð, lítum ekki á það sem eðlilegan hlut að þjóðvegurinn sé með bundnu slitlagi og gengið þannig frá vegalögn, þar sem umferðin er mest, að sem minnst hætta sé á slysum þar sem umferð er mikil. Það þarf að breikka vegi til að koma í veg fyrir árekstra bíla sem koma sitt úr hvorri áttinni. Umferðaþungi hefur fyrir löngu náð því marki, að það er nauðsynlegt gera umbætur. Það myndu aðrar þjóðir gera.
En við Íslendingar höfum ekki efni á því. Segjum við. Það er nefnilega þannig með okkur að við höfu vanið okkur á að gera mikið úr sérstöðu okkar þegar okkur hentar, í öðrum tilfellum erum við eins og allir aðrir.
Ég held því fram að, þetta með að við höfum ekki efni á að gera umbætur sé hugsunarvilla, slíkt gerist ef maður er fastur í vanahugsunum sem eiga ekki lengur við. Þegar ég var að alast upp um miðbik síðustu aldar voru vegir víða einbreiðir. Þá var áherslan lögð á að stækka vegakerfið. Þá var umferðin einungis brot af því sem hún er nú. Stundum finns mér að ráðamenn séu enn staddir þarna.
Fyrir u.þ.b. 20 árum heimsótti ég Færeyinga, fór m.a. í skoðunarferð alla leið til Viðeyjar. Ég var uppmumin af því hve vegirnir voru góðir. Allt malbikað og göng, þar sem þeirra var þörf. Og það var víða. Þegar ég spurði hvernig þeir færu að þessu, var svarið:"Það var tekin sú ákvörðun um að við vildum halda öllum eyjunum í byggð."Svo einfalt var það.
Mér hefur oft síðan verið hugsað til Færeyinga þegar talið berst að vegamálum og byggðamálum. Einu sinnni voru djúp hjólför víða hindrun fyrir minni bíla, bíllinn tók niðri. Nú segi ég: Upp úr hjólförunum. Upp úr hjólförum hugans. Hættum að skilgreina okkur öðru vísi, þegar það á ekki við. Slys á útlendingum er ekki þeim að kenna, þau eru vegna þess að vegirnir eru ekki fólki bjóðandi. Ekki heldur Íslendingum.
Myndin er af pistlahöfundi við Múrinn. Hana tók Erling Ólafsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.8.2017 | 21:59
Er eitthvað að marka fréttir?
Ég fæ svo miklar fréttir af því sem er að gerast í Venesúela. Daglega hlusta ég á fréttir þaðan um óheillavænlega þróun mála. Það fer eitthvað voðalegt að fara að aðsigi, hugsa ég. Voðalegt fyrir hverja, hugsa ég áfram?
Reyndar er ástandinu lýst þannig, að það sé nú þegar hræðilegt.Það þarf að binda endi á þettaer sagt. En hvað?
Það er erfitt að fylgjast með málum í fjarlægum löndum, þar sem maður þekkir lítið sem ekkert til. Fréttir verða að mötun, því maður er ófær um að meta hvað er satt eða ósatt. Ófær um að skilja, hvað þá að taka afstöðu.
Undanfarna daga hef ég verið að lesa (hlusta á) bók eftir Manuel Scorza (f. 1928 d. 1983), Þorp á heljarþröm. Þessi bóki kom út á spænsku 1971, en hér kom hún út 1980. Hún er þýdd af Ingibjörgu Haraldsdóttur og það er einnig Ingibjörg sem les bókina fyrir Hljóðbókasafnið. Með sinni mjúku þíðu rödd.
Bókin gerist í Perú og er um þorp á heljarþröm. Það liggur eitthvað voðalegt loftinu. Ástandið er slæmt en það versnar enn, þegar landeigendur þrengja að bændum, meðal annars í fjallaþorpinu Rancas, með því að taka frá þeim landið. Víðfeðm landsvæði eru girt af með gaddavír, bústofninn sveltur. Dýrin hrynja niður.
Þessi saga gerist í Perú, ekki í Venesúela . Höfundur bókarinnar er Manuel Scorza er ekki bara rithöfundur, hann tók einnig virkan þátt í stjórnmálum. Það er ekki óvenjulegt að svo sé um suðurameríska rithöfunda.
Ég veit jafn lítið um Perú og ég veit um Veneesúela, en ég hneigist til að trúa skáldum betur en fréttamönnum. Skáld kafa dýpra, fljúga hærra. Get ekki að þessu gert. Þannig er það bara. En mig langar til að trúa.
Í formála bókarinnar er segir höfundur, að hún byggi ekki bara á staðreyndum, heldur sé hún um það sem raunverulega gerðist. Í inngangi segir jafnframt að þat sé einungis breytt einstaka nafni til að vernda saklaust fólk frá réttvísinni.
Þegar ég les mér til í fljótheitum um þessi tvö lönd, Venesúela og Perú, sé ég að þau eiga margt sameiginlegt. Þau eru t.d. rík af auðlindum þótt stór hluti fólksins lifi í sárri fátækt.
Er það það sem nú er að gerast í Venesúela fyrst og fremst vegna óstjóþetta rnar,eða er þetta vísvitandi harðstjórn? Hvað gengur þeim til? Snýst þetta um persónur þeirra sem fara með völd?
Ég get ekki áttað mig á því í þótt ég hlusti samviskusamlega á fréttir hvern einasta dag. Ég tortryggi þessar fréttir, þær eru grunnar. Ekki bætir, að stöðugt er vitnað í yfirlýsingar frá Bandaríkjunum. Eiga þeir að ráða þessu?
En svo ég snúi mér aftur að Þorpi á heljarþröm. Þar er því lýst hvernig fólk hugsar þegar óréttlætið verður svo mikið að boðorðin fara á hvolf, a.m.k. það 8. Þú skalt ekki stela verður, láttu ekki ræna þig eða steldu. Er það eitthvað svona lagað sem er að gerast í Venesúela?
Ég er ekki búin með bókina um Rancas, þorpið á heljarþröm,sem er hvergi til nema á kortum hershöfðingjanna sem eyddu því. Það er heldur ekki komin nein niðurstaða í hvað verður í Venesúela. En ég vona það sem gerist verði í anda réttlætis.
Ég vona líka að ég hætti að tortryggja fréttamenn og treysti þeim í staðinn til að flytja mér fréttir sem ég bæði skil og trúi.
Bloggar | Breytt 3.8.2017 kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2017 | 22:26
Rattenkinder; B.C. Schiller: Ein leið til að læra tungumál þó seint sé
Ég er ekki bara að lesa Karl Ove Knausgård, til hliðar við þann lestur, vinn ég að því að bæta menntaskólaþýskuna mína með því að hlusta á hljóðbækur á þýsku. Ég les krimma. Í þetta skiptið vað bókin Rattenkinder fyrir valinu. Hún er eftir austurríska rithöfundaparið B.C. Schiller. Þetta er ekki fyrsta bókin sem ég les eftir þau, svo ég veit að hverju ég geng. Þar á undan las ég Toten ist ganz einfach og Totes Sommermädchen. Í öllum þessum bókum er rannsóknarmaðurinn Tony Braun í Linz í aðalhlutverki.
Ég ætla hér að segja aðeins frá bókinni um rottubörnin, þó án þess að segja of mikið og eyðileggja þar með spennuna fyrir þeim vilja lesa.
Bókin hefst á því að segja frá dularfullum dauðsföllum sem tengjast á einhvern hátt sjúklingi, Viktor Maly, sem er í meðhöndlun á geðsjúkrahúsi, lokaðri deild. Hann hefur misst minnið. Það vaknar grunur um raðmorð, fórnarlömbin eru konur, morðinginn skilur eftir rottuhauskúpu hjá líkunum. Fljótlega kemur í ljós að morðin tengjast Romafólki (sígaunum). Börn hafa horfið.
Sagan er blóðug og full af ofbeldi. Það var erfiðast fyrir mig er að Tony Braun er að alltaf, þegar á reynir, að gaufast einn, sem hann á auðvitað ekki að gera, og lendir í lífshættu. Sama gerir samstarfskona hans Franka og má heppin heita að sleppa lifandi.
Nú er ég kannski búin að segja of mikið. Þar sem ég er óvön að hlusta á þýsku, þarf ég að hafa mig alla við að ná samhengi. Mér fannst erfiðast að fylgja þræði þegar mest gekk á. Það var auðvitað bagalegt en eftir að haf spólað nokkrum sinnum til baka, náði ég söguþræðinum. Eða það held ég.
Ég á í erfiðleikum með að meta bækur B. C. Schiller af því að ég þarf svo mikið að hafa fyrir því að skilja tungumálið. Reyndar eykur óvissan um hvort rétt sé skilið enn á spennuna. En þetta er óneitanlega spennandi lesning.
Það er líka spennandi að velja nýja bók á þýsku en nóg er úrvalið.
En hefur mér farið fram? Það held ég og ef ekki þá kemur þetta á endanum.
Og svo held ég náttúrlega áfram með Knausgård vin minn.
Bloggar | Breytt 30.7.2017 kl. 00:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Bergþóra Gísladóttir
Nýjustu færslur
- 20.10.2023 Um Torfhildi Hólm
- 12.10.2023 Gráu býfugurnar hans Andrej Kurkov
- 29.6.2023 Tugthúsið
- 19.6.2023 Það er svo gaman að vera vondur
- 18.6.2023 Ferð til Skotlands og Orkneyja
Færsluflokkar
Tenglar
Baráttusamtök
Vinir og vandamenn
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.7.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 47
- Frá upphafi: 190338
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 39
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar