Dauðinn og mörgæsin Andrej Kurkov

DA8C850A-210F-4148-A7DB-A81B4D382E36
Dauðinn og mörgæsin

Ég las bókina, Dauðinn og mörgæsin strax og hún kom út en þá var hún kynnt af höfundi á  bókmenntahátíð í Iðnó. Þetta hefur líklega verið 2005. Höfundurinn, Andrej Kurkov, var gestur á hátíðinni og kynnti bókina sjálfur. Andrej Kurkov er  fæddur  í Leníngrad 1961 en flutti tveggja ára með foreldrum sínum til Úkraínu. Hann skrifar á rússnesku.

Sagan

Bókin fjallar um hæglátan rithöfund sem býr einn. Honum hefur haldist illa á konum og honum hefur líka gengið illa að fá verk sín útgefin. Kannski er ekki rétt að hann búi einn því hann á mörgæs og hún tekur mikið pláss í lífi hans og í þessari bók. Honum gengur best að semja stutta texta. Af tilviljun sendir hann einn slíkan til Höfuðstaðsblaðsins. Eftir það fær hann beiðni frá ritstjóranum um að skrifa fyrirfram minningargreinar um þekkt fólk. Það er gott að eiga þær á lager og tiltækar, segir hann. Allir deyja einhvern tíma. Ritstjórinn stingur sjálfur upp á um hverja skuli skrifað og leggur honum til heimildir. Það lítur út fyrir að Viktor hafi dottið í lukkupottinn. En það fylgir böggull skammrifi.   Viktor tekur  eftir því að persónurnar sem hann hefur skrifað um, látast gjarnan fljótlega eftir að hann hefur skilað inn skrifum sínum um þær.Allt þetta gerist nokkru eftir fall Sovétríkjanna og það eru mikil umbrot í þjóðlífinu, ríkiseignir komast í einkaeign.

Fjölskyldan stækkar

Um svipað leyti og úr rætist með fjarhag Viktors biður vinur hans hann fyrir Sonju, fjögurra ára dóttur sína um stundarsakir. Þegar það dregst að hún sé sótt, ræður hann unga stúlku til að gæta hennar svo það eru orðnir fimm í heimili. Með mörgæsinni meðtalinni.

En líf hans er ekki áhyggjulaust. Mörgæsin vanþrífst. Hún reynist vera með hjartagalla og þarf nýtt hjarta. Hjarta úr barni. Þetta er viðburðarík og spennandi frásögn en ég ætla ekki að rekja hana frekar hér.

Að lesa bók tvisvar

Það eru gömul sannindi að það er ómögulegt að stíga tvisvar í sama lækinn. Eins er þetta með bóklestur, bókin tekur sífelldum breytingum. Ný bók við hvern lestur. Þegar ég las þessa bók í fyrra skiptið, fannst mér hún fyrst og fremst fyndin. Það gerði mörgæsin. Það er eitthvað dæmalaust fyndið við mörgæsir. Líklega er það göngulagið og hvað þær eru líkar mönnum.

Þegar ég las bókina núna fann ég til ótta. Það var eitthvað óhuggulegt í gangi eins og enginn væri óhultur. Og svo voru það veikindin á mörgæsinni.

Ekki veit ég hvað verður í forgrunni þegar ég les hana næst. Ef mér endist aldur. En ég hef það til siðs að lesa góðar bækur oft.

Bókin í paddanum

En ég  hafði næstum gleymt því að ég les ekki lengur bækur. Ég hlusta. Þannig verður

bókin sem ég les, verk margra. Það er Áslaug Agnarsdóttir sem þýðir bókina úr rússnesku. Hjálmar Hjálmarsson les hana fyrir Hljóðbókasafnið.

Ég sakna þess að það skuli ekki fylgja henni formáli því mér þykir líklegt að bókin sé fyrst og fremst fyrir heimamenn og það sé margt í henni sem er þeim ætlað og ég skil ekki eða misskil. Ég finn þó að það er margt sem kraumar undir í þessari bók. Og svo minnir hún auðvitað á stríðið, sem við fáum daglegar fréttir af. Einhvern tíma verður hægt að heimsækja Úkraínu.
Kannski og vonandi.  

Myndin á ekkert skilt við greinina. Hún er úr mínum heimahögum og er til skrauts. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bergþóra Gísladóttir

Höfundur

Bergþóra Gísladóttir
Bergþóra Gísladóttir
Ekki bráðung og hef komið víða við því ég er frekar dýr en planta.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • C9EB8261-F520-405B-9694-8235B40EF253
  • 290974CD-97E2-455E-9941-73B0F9997E6B
  • 800D7FD8-F6ED-4EB2-B141-653DA0360FE6
  • EA321379-6F18-48B5-A676-355C7607B59A
  • 0741CFBA-0D8F-4AA6-8F32-6676B4769C1E

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 76
  • Frá upphafi: 187216

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband