Ljóð gleðja

IMG_0500
Með ljóð á  heilanum

Flestir kannast við að fá lög á heilann. Ég hef lengi strítt við það. Allt í einu koma lögin bara og glymja í hausnum á mér. Ég veit ekki af hverju.  Oft eru þetta meira að segja lög sem ég  hef lítið dálæti á. En í vor varð skyndilega breyting á. Það komu ljóð í stað laga.

Fyrsta ljóðið sem settist að í höfðinu á mér, var Svanir fljúga hratt til heiða eftir Stefán frá Hvítadal. Auðvitað bara nokkrar línur, framhaldið las ég svo á Google.  Mér til mikillar ánægju komst ég að því að ég kann það nokkurn veginn. Þetta er svo fallegt ljóð. Í framhaldi af því fór ég að hugsa um sólina, vorið og okkur Íslendinga.  Annan sólardag heimsótti Guðmundur Böðvarsson skáld mig með ljóðinu Kyssti mig sól og sagði, sérðu ekki hvað ég skín, gleymdu nú vetrargaddinum sára.  Gleymdu honum ástin mín. Nú er ég átján ára.   Forskriftin sem pabbi gaf mér (og systkinum mínum) í forskriftabókina, þegar ég var að læra að skrifa var: Ó, blessuð vertu sumarsól, eftir Pál Ólafsson. Þannig lærði ég það kvæði. Seinna lærði ég litla ljóðið um sólskríkjuna. Sólskríkjan skiptir ekki bara um búning til að taka á móti sólinni, hún skiptir líka um nafn. Hættir að vera snjótittlingur. Hvernig ætti  fugl með slíkt nafn að syngja fyrir skáld?

Eftirmáli

Líklega þarf ég að útskýra þetta með forskriftabókina. Þegar ég var barn, það er langt síðan, tíðkaðist það að sveitabörn lærðu heima hjá foreldrum sínum, til tíu ára aldurs. Þá tók farskólinn við. Þetta eru breyttir tímar. Einn vetur kenndi mér engin önnur en Oddný Guðmundsdóttir snillingur. Hún lét okkur gera vinnubók um skáld. Og svo átti maður að læra ljóð utanbókar . Mikið finnst mér vænt að hafa þurft að læra ljóð utanað. Þau eru sífellt að koma til mín. Ljóð gleðja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bergþóra Gísladóttir

Höfundur

Bergþóra Gísladóttir
Bergþóra Gísladóttir
Ekki bráðung og hef komið víða við því ég er frekar dýr en planta.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • C9EB8261-F520-405B-9694-8235B40EF253
  • 290974CD-97E2-455E-9941-73B0F9997E6B
  • 800D7FD8-F6ED-4EB2-B141-653DA0360FE6
  • EA321379-6F18-48B5-A676-355C7607B59A
  • 0741CFBA-0D8F-4AA6-8F32-6676B4769C1E

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 15
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 80
  • Frá upphafi: 187348

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 73
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband