Millibilsmaður: Hermann Stefánsson

0741CFBA-0D8F-4AA6-8F32-6676B4769C1E

Millibilsmaður

Bókin Millibilsmaður eftir Hermann Stefánsson er í senn skemmtileg og spennandi. Ég lauk við hana klukkan 3 að nóttu. Gat ekki hætt. Nú, þegar ég er án allra skuldbindinga finnst mér gott að láta það eftir mér að gleyma mér yfir bókum.   Sagan segir frá ungum læknishjónum í upphafi 20. aldar. Þetta er söguleg skáldsaga. Höfundur greinir frá þessu í stuttum formálsorðum. Jafnframt lætur hann þess getið að aðalpersónan, Jannes eigi ýmislegt sameiginlegt með Guðmundi Hannessyni langafa hans. Ég ímynda mér svo að sama gildi um Mekkín,konu læknisins. Guðmund kallar  höfundur Jannes. Persónur sögunnar eru meira og minna landsþekktar persónur sem heita ýmist eigin nöfnum eða nöfn eru brengluð. Ég geri mér ekki grein fyrir hvað ræður.

Vísindi og trú

Læknirinn er menntaður og hugsar sem vísindamaður. Hann vill ekki bara þekkja kvillana, hann vill skilja hvernig þeir tengjast samfélaginu þar sem þeir þrífast í. Læknirinn og kona hans vinna náið saman en þau hugsa ólíkt. Hann vill ekki láta skíra börnin. Honum finnst það beinlínis ljótt, því skírninni er ætlað að hreinsa þau af erfðasyndinni. Það er ljótt að klína svona löguðu á börn. Hann hugsar eins og ég og Helgi Hóseasson sveitungi minn. Konu hans Mekkín finnst rétt að fylgja hefðinni og skíra börnin. Kannski er hún trúuð, hugsar hann.

 Læknisfræðin byggir á vísindalegri hugsun og hann hefur tamið sér að hugsa þannig. Það þarf að vera hægt að sanna eða afsanna.

Fjölbreytt efni

Efni bókarinnar er fjölbreytt. Jannes hefur áhuga á svo mörgu. Auk læknastarfsins lætur hann sig varða umhverfismál og pólitík. Svo stendur hann í húsbyggingu og kennir læknisfræði. Hann hefur áhuga á fólki og blandar geði við hvern sem er. Frásagan um samskipti hans við utangarðsfólkið Zakkarías og Konkordíu er til marks um það. Og kveðskapur Konkordíu er glæsilegur.

Spíritismi

Í Reykjavík þessa tíma blómstrar spíritismi. Hluti af menntaðri borgarastéttinni lítur á spíritisma sem svar trúaðra við vísindahyggjunni. Þeir vildu á þann hátt sanna trú sína, með því að gægjast inn í annan heim. Þetta eru ólíkir hugmyndaheimar sem takast á. Miðilsfundir eru vísindaleg sönnun á framhaldslífi. Hugsa þeir.

Um leið er tekist á um stöðu Íslands gagnvart Danmörku.

Ólíkir hugmyndaheimar

Í þessari bók er sagt frá væringum á milli þessara hópa. Fyrir mér er þetta kunnuglegt. Þegar ég var barn, fann ég bók sem gaman var að glugga í. Þetta var tímaritið Dvöl. Pabbi hafði meira að segja bundið hana inn. Þar var fjallað um Spíritisma og það voru meira að segja myndir.

Þegar fortíðin lifnar við

Það var gaman að lesa þessa bók, það var eins og að vera stödd þarna. Mér fannst það merkilegt, því ég man ekki betur en að tímabilið „upp úr 19-hundruð“, væri leiðinlegasti kaflinn í Íslandssögunni á sínum tíma.

Hljóðbókin

Ég móttók bókina sem hljóðbók. Það er Árni Blandon sem les. Mér fellur vel lestur hans. En bókin sjálf er til hér á heimilinu. Hún er afar falleg. Innábrot kápunnar er blómum skreytt og mér varð hugsað til Mekkín, skyldi þetta vera hennar handverk? Ég efast reyndar um það en í bókinni er sagt frá því þegar hún mitt í öllum erlinum á fjölmennu heimili, dundar við að mála blóm.


Þormóður Torfason eftir Bergsvein Birgisson

C1B7EC5E-4B4C-4A22-AF35-0329D82A3E0D

Hver var þessi Þormóður Torfason?

Það gladdi mig ósegjanlega, þegar ég sá að það var búið að lesa inn nýja bók eftir Bergsvein Birgisson. Bókin er um mann sem er fæddur á 17. öld, þessari myrku öld galdra og dómhörku. Við vitum svo lítið um þessa öld. Ég tala   auðvitað bara fyrir mig .

Þormóður Torfason var fæddur í Engey 1636 og dó í Noregi 1719. Bergsveinn rekur ævi hans út frá heimildum, sem eru takamarkaðar og prjónar við eftir því sem honum finnst líklegt út frá stöðu hans og tíðaranda.

Glæst braut

Þormóður fór til náms í Skálholtsskóla og þótti afbragðs námsmaður. Þaðan fór hann til náms í Kaupmannahöfn. Eftir að hafa lokið námi þar, hóf hann að vinna að því að afrita handrit.

Þetta var á þeim tíma sem Svíar og Danir tókust á um hvorir ættu að vera forystuþjóð á Norðurlöndum og   augu manna höfðu  opnast fyrir því að Íslendingar höfðu skrásett ýmislegt sem sem vitna mátti í til að styrkja stöðu sína. Þormóður sat sem sagt við að afrita Flateyjarbók og þýða yfir á dönsku. Efni Flateyjarbókar var þá pólitískt og brennheitt.  Á tímabili var Þormóður meira að segja kominn með skrifborðið sitt inn í höll konungs, sem þá var Friðrik 3. Sá hinn sami sem var fyrstu til að gerast einvaldskonungur yfir okkur. En eitthvað fór úrskeiðis hjá Þormóði. Hann kunni sig ekki fór flatt á hirðsiðunum að haldið er. Hefði ef til vill ekki átt að lesa upp úr Bósasögu fyrir hirðmeyjarnar. Við vitum það ekki. En allt í einu er honum varpað á dyr, án skýringa og gert að flytja til Noregs með illskiljanlegt embættisbréf. Þar hófst nýr kafli í sögu hans. Þormóður festi ráð sitt í Noregi en ég ætla ekki að rekja þá sögu frekar hér. Í staðinn langar mig að tala um það sem mér finnst vera best gert í þessari sögu, en það er lýsing á tíðaranda og hugmyndaheimi þessa tíma. Völdin eru Guðs gjöf og þar með stéttaskiptingin. Stéttaskipting réðist af ætt og eignum. Flestar sögur frá fyrri tímum fjalla um fólk úr efstu lögunum. Fátæklingar koma lítt við sögu nema þeir gerist brotlegir við lög. Sama má segja um konur. En það er hægt að geta sér til. Í lýsingu Bergsteins á Þormóði er honum lýst sem sundurgerðarmanni í klæðaburði. Það er til af honum mynd (sjá Wikipediu)   þar sem hann er uppstrílaður  en karlmenn höfðu leyfi til að punta sig meir þá en nú.

Að prjóna við

Ég hef áður sagt að þar sem heimildum sleppir, þá prjónar höfundur við, leiðir líkur að. Þetta kemur ekki að sök því höfundur leyfir lesendum að fylgjast með röksemdafærslunni og hefur þar með leyfi til að hafna eða samþykkja.

Þarna hefur Bergsveinn sama hátt á og í bók sinni, Svarta víkingnum.

Bókin kom fyrst út í Noregi, það var Vésteinn Ólason þýðir hana á íslensku.

Hljóðbókin er lesin af Árna Blandon. Hann er traustur lesari.

Myndin af hreindýrunum er tekin af Arnaldi Sigurðssyni austur í Breiðdal.


Eitt satt orð og Harðar saga Grímkelssonar eða Hólmverjasaga

FCBB093D-1C8C-4289-AF4A-B9AE29670368
Eitt satt orð

Ekki veit ég hvaða orð lýsa bók Sveinbjörn Arngríms ssonar best. Þetta er saga um glæp en alls ekki   spennusaga. Þetta er hægfara saga sem fjallar um hjónaerjur. Hún segir  frá

 pari á óskilgreindum aldri. Þau eru bæði heimavinnandi. Dag einn biður     

konan sambýlismann sinn um að koma með sér upp í Hvalfjörð. Hana langar til skoða litla eyju eða hólma til að öðlast betur tilfinningu fyrir námsefni sem sem hún er að semja. Hann langar ekki, en fer samt. Andrúmsloftið í bílnum á leiðinni upp í Hvalfjörð er þrúgandi. Þau fara saman út í hólmann. Konan fer svo ein til baka, vill refsa manninum  fyrir að vera í fýlu. Þegar hún snýr aftur til að vitja hans,  er hann ekki þar. Í framhaldi af þessu lætur hún hefja leit að honum en segir ekki satt um viðskilnað þeirra í hólmanum. Hún skrökvar og skrökvar. Er hrædd um, að ef upp kemst, verði hún sótt til saka fyrir að  skilja hann einan eftir  í hólmanum.

 Hún fær mikla hjálp frá lögreglunni við að leita mannsins, sérstaklega   frá einum  eldri manni, sem ávarpar hana „vina mín“.

Konan býr til aðra sögu um hvernig maðurinn hvarf, sleppir að segja frá  ferðinni upp í Hvalfjörð og út í hólmann.

Þetta er sem sagt dálítið sérstök saga ef maður nálgast hana sem glæpasögu, því hún er fyrst og fremst lýsing á persónu sem festist í eigin lygavef og á ekki afturkvæmt. Hún er eins og staður hestur. Ég velti því fyrir mér hvort henni þætti vænt um mann sinn eður ei. Alla vega þykir henni vænna um sjálfa sig svo hún lýgur og eyðileggur þar með alla leit.

Önnur saga

En bókin ýtti við mér til að lesa aðra bók þar sem hólminn kemur við sögu.

Hún er merkileg saga sökum margs. Þar segir m.a. af mögnuðum  hjónaerjum og átökum um barnauppeldi. Hjónabandið rétt lafir á einum manni sem er vinur beggja. Í veislu sem haldin er að loknu blóti á bæ þeirra, Ölvisvatni, er lýst uppákomu sem verður í veislunni.  Móðirin situr í stól sínum á miðju stofugólfi og í knjám hennar hvílir forláta men, dýrgripur. Drengurinn Hörður sem er þriggja ára og ekki farinn að ganga, skríður um gólf. Allt í einu rís hann upp hinum megin í stofunni, gengur til móður sinnar og hrasar.Við það fellur menið góða  í gólfið og brotnar.  Móðirin segir þá við  drenginn sinn: „Ill var þín fyrsta ganga og munu  svo margar eftir fara og verst hin síðasta“ (tilvitnun eftir minni). Maður hennar tók þá drenginn og kvað vísu. Þau hjón yrktust gjarnan á.

Auðvitað fór svo sem vísan segir til um. Drengurinn  Hörður endaði ævina  ásamt ræningjaflokki sínum í hólmanum.

Bók kallar á bók

Eftir lestur bókar Arngríms velti ég því fyrir mér, hvort hann hefði lesið Harðarsögu. Hún fjallar vissulega um hjónabandserfiðleika.

Ekki veit ég hvort erfiðleikar parsins í Eitt satt orð, vísi til Harðarsögu en ekki  spillir að lesa báðar.

Ég ætla að láta hér staðar numið. Átti erfitt með að koma mér af stað með að skrifa þetta. Jólabókunum rignir inn.  Og mig langar að lesa þær allar.


Hugleiðingar um bækur og bóklestur

290974CD-97E2-455E-9941-73B0F9997E6BAuðvitað les/hlusta ég mikið á bækur. Ég hef alltaf gert það og nú hef ég ekkert annað að gera. Auk þess skrifa ég pistla um það sem ég les. Ekki til að flokka þær í góðar  og vondar, heldur til að greina betur efni þeirra og upplifun mína af því að lesa þær. Flestar bækur sem ég les eru skáldsögur. Oftast spennusögur. Á þessu eru þó  fjölmargar undantekningar. Fyrir algjöra tilviljun las ég t.d. bók Bergsveins Birgissonar, Landslag er aldrei asnalegt. Hún kom bara upp í hendurnar á mér. Ég hélt að ég hefði lesið allt sem út hefur komið eftir Bergsvein, en svo er ekki. Bókin minnir í senn á þjóðlegan fróðleik og á bækur Jóns Kalmanns. Er um leið fyndin og full af trega.

Nú, þegar líður að jólum fjölgar bókum á markaði mjög mikið, sumir tala um flóð. Auðvitað get ég ekki komist yfir allt og ég verð að bíða eftir því að bókin sé lesin inn.

Megnið af bókum  sem koma út eru spennusögur. Ekki veitir okkur gamla fólkinu af að fá einhverja spennu í lífið. En  eintóm spenna er þreytandi. Þess vegna  tók ég því með þökkum þegar ég sá að búið var að lesa inn bók Sigríðar Víðis Jónsdóttur, Vegabréf íslenskt. Ég hafði áður lesið eftir hana, Ríkisfang ekkert og vissi að hún kann að skrifa læsilegar bækur um fólk sem býr við  aðstæður sem eru ólíkar okkar.

Vegabréf íslenskt er einskonar ferðasögubrot frá því Sigríður var ung kona, blaðamaður og full af ferðaþrá. Það er engu líkara en hún rambi alltaf inn í miðju stormsins. Það gengur svo mikið á í veröldinni. Við vitum það úr fréttum en það lítur öðru vísu út þegar maður er staddur á vettvangi.

Lokaorð

Ég finn að þessi pistill minn er dálítið sundurlaus en svona blasir lífið við akkúrat núna.


Farsótt: Kristín Svava Tómasdóttir

800D7FD8-F6ED-4EB2-B141-653DA0360FE6Bók  sem ferðafélagi

Líklega les ég aldrei meira en á ferðalögum. Trúlega er ástæðan sú, að það tekur lengri tíma að róa hugann fyrir svefn þegar maður er ekki heima hjá sér. Ekki tengdist þó lestur minn Spáni og þaðan af síður fjölþjóðaborginni Torrevieja þar sem ég dvaldi.

 Bókin sem ég las

Farsótt er eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur sagnfræðing og ljóðskáld.  

Hún fjallar um lífið á Íslandi við lok 19. aldar og  upphaf  þeirrar 20. Reyndar afmarkar höfundur  tímann ekki sérlega stíft. Efni bókarinnar hverfist um  húsið Farsóttt, sem enn stendur. Hún hefst á að segja frá byggingu þess og lýkur á að segja frá einhvers konar vandræðagangi við að finna því tilgang.

Í rauninni er bókin ekki fyrst og fremst um Farsótt, heldur um stöðu heilbrigðismála hér á Íslandi og sér í lagi í Reykjavík við lok 19. aldar. Þetta var tími farsótta, sullaveiki og berkla. En við áttum öfluga en fámenna heilbrigðisstétt. Þá sem nú,  virðast yfirvöld líta á það sem hlutverk sitt að halda fast um pyngjuna. Það voru komin hér tvö erlend sjúkrahús, áður en hafin var bygging á Landsspítala,  þ. e. Landakotsspítali og Franski spítalinn.

En íslensku læknarnir voru duglegir og það voru konurnar líka, sem sáu um rekstur þessa fyrsta spítala sem íslendingar komu á fót.

En bókin  er ekki fyrst og fremst um sjúka og fátæka, hún er um fólk og samfélag. Læknar eru að sjálfsögðu í stóru hlutverki og það eru læknanemar líka. Ekki veit ég hvernig hefur ræst úr þessum nemum en þeir voru fullir af gáska og léku sér meira að segja með líkin.

Það er greinilegt að Kristín hefur miklar heimildir til að vinna úr. Sagan er bæði djúp og breið, full af sögum af fólki. Það er sláandi að hún er um fólk en ekki endilega um fyrirfólk eins og margar sögur frá þessum tíma.

Lokaorð

Það var ekki bókinni að kenna en þó í beinu  framhald af lestri hennar, að þegar ég hugði á heimferð, var ég komin með pest og er nú viku seinna loks að losna við þann ófögnuð.

Aftur að bókinni

Ég hafði ekki fyrr lokið bókinni að ég var ákveðin í að lesa hana aftur. Á henni eru margar matarholur.  Ég ætla líka að skoða þetta hús betur.


Um bloggið

Bergþóra Gísladóttir

Höfundur

Bergþóra Gísladóttir
Bergþóra Gísladóttir
Ekki bráðung og hef komið víða við því ég er frekar dýr en planta.
Nóv. 2022
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • C9EB8261-F520-405B-9694-8235B40EF253
  • 290974CD-97E2-455E-9941-73B0F9997E6B
  • 800D7FD8-F6ED-4EB2-B141-653DA0360FE6
  • EA321379-6F18-48B5-A676-355C7607B59A
  • 0741CFBA-0D8F-4AA6-8F32-6676B4769C1E

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 72
  • Frá upphafi: 187446

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband