27.11.2015 | 16:32
Brot af mannkynssögu:Ójafn leikur:Susan Abulhawa
Maður nokkur gekk fram á stóran rum þar sem hann var að berja á litlum dreng. Sá stóri hafði haft hann undir og lét höggin ganga, eins og hann ætlaði að ganga frá hinum. Göngumaðurinn ætlaði að ganga á milli og stoppa misþyrmingar en þá dreif að mannfjölda sem hrópaði: Láttu þetta afskiptalaust, sjaldan á einn sök þegar tveir deila (lesið jafnframt Lúk.10.29-37).
Ein besta leið til skilja líf sem er manni ókunnugt eða framandi er að lesa bækur. Ekki fræðibækur, heldur bækur um lifandi fólk, skáldsögur.
Flestar bækur sem við lesum eiga uppruna sinn í menningu sem líkist okkar, menningu sem við þekkjum af eigin raun eða þekkjum vel til. Þó er vitað mál að einmitt lestur bóka, einkum skáldverka er ein besta leiðin til að skilja fólk frá menningarsvæðum sem eru ólík okkar. Og hvað er gagnlegra en að skilja fólk? Nema ef til vill að skilja sjálfan sig? Til þess lesum við bækur.
Í bókaklúbbnum mínum reynum við annað slagið að taka mið af þessu við val bóka. Við lesum bækur höfunda sem við þekkjum ekki um líf fólks frá löndum þar sem við þekkjum lítið til.
Síðast varð fyrir valinu Morgnar í Jemin eftir Susan Abulhawa. Í bókinni er rakin saga einnar fjölskyl du, um leið er sögð saga palestínsku þjóðarinnar. Sögumaður Amal, er palestínsk stúlka. Hún er sloppin úr prísundinni, palestínska þjóðin er innilokuð,og býr við velmegun í Bandaríkjunum en hún hefur misst landið sitt og það er eins og glata hluta af sjálfum sér.
Þetta er vel sögð saga. Hún er átakanleg. Þótt við hér á Vesturlöndum séum ekki óvön því að fá fregnir frá átökum í Palestínu, oft tölur um fjölda látinna, kemur það öðru vísi við mann að lesa um fólkið sem lifir við þetta ástand og verður fyrir sprengjunum. Á sama tíma og ég var að lesa þessa bók, fylgdist ég með fréttapistlum vinkonu minnar Bjarkar Vilhelmsdóttur, sem hefur nú um nokkurt skeið verið nokkurs konar vitni á vettvangi. Allt stemmir, enn er verið að ræna landi, enn er verið að storka fólki og lítilsvirða það.
Hversu lengi verðum við að horfa á þennan ójafna leik.
Myndin er frá Björk Vilhelmsdóttur
Um bloggið
Bergþóra Gísladóttir
Nýjustu færslur
- 20.10.2023 Um Torfhildi Hólm
- 12.10.2023 Gráu býfugurnar hans Andrej Kurkov
- 29.6.2023 Tugthúsið
- 19.6.2023 Það er svo gaman að vera vondur
- 18.6.2023 Ferð til Skotlands og Orkneyja
Færsluflokkar
Tenglar
Baráttusamtök
Vinir og vandamenn
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 5
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 90
- Frá upphafi: 187301
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 82
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.