Ég neyddist til að kaupa nýjan heimilssíma

Mér er meinilla við að henda. Síminn sem við keyptum í Kaupfélaginu á Blönduósi hafði um nokkurt skeið verið til vandræða. Stundum var ekki hægt að svara í hann af því takkarnir stóðu á sér. Hann hringdi og hringdi en það var bara ekki hægt að svara. Við sáum á númerabirtinum hvaða númer hringingin kom og gátum svarað úr farsíma. Inn á milli var allt í lagi með símann, það var eins og honum batnaði og við fylltumst bjartsýni. Í gærkvöldi gafst síminn alveg upp. Við gátum ekki svarað einni einustu hringingu og sáum heldur ekki númerið sem hringt var úr. Í dag tókum við því ákvörðun um að kaupa nýjan síma. Eina huggunin er að símar hafa þótt undarlegt sé, lækkað í verði. Við keyptum ódýrasta símann sem í búðinni. Hann er bleikur með hvítum tökkum, afar kvenlegur sími en Erling lagði blessun sína yfir kaupin.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bergþóra Gísladóttir

Höfundur

Bergþóra Gísladóttir
Bergþóra Gísladóttir
Ekki bráðung og hef komið víða við því ég er frekar dýr en planta.
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • C9EB8261-F520-405B-9694-8235B40EF253
  • 290974CD-97E2-455E-9941-73B0F9997E6B
  • 800D7FD8-F6ED-4EB2-B141-653DA0360FE6
  • EA321379-6F18-48B5-A676-355C7607B59A
  • 0741CFBA-0D8F-4AA6-8F32-6676B4769C1E

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.8.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 190718

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband