20.4.2014 | 20:20
Ævisögur
Það er eitthvað með mig og ævisögur, að minnsta kosti með mig og sjálfsævisögur. Einhverra hluta vegna tortryggi ég þær og tvístíg lengi áður en ég læt verða af því að lesa þær. Þetta var þó á ómeðvituðu plani þangað til fyrir u.þ.b þrem vikum. Það gerðist með þeim hætti að það var ekki lengur hægt að tala við systur mína til að fá fréttir af búskapnum, hún var svo upptekin af Nexö.
Nexö hafði ég reyndar lesið en man nú einungis eftir því þegar hann lá veikur. Hann var með berkla og óttaðist að hóstinn gerði honum einungis skaða og ákvað því að hætta að hósta. Og það gekk eftir. Þetta (að stöðva hósta með viljaaflinu) en ekki tekist. Eftir samtalið við systur mína ákvað ég að taka mér tak.
Fyrst leit ég yfir bókahilluna og reyndi að átta mig á hvaða góðar ævisögur ég ætti og hefði lesið. Ég ákvað að halda mig við íslenskar. Fyrsta bókin sem ég staðnæmdist við var bók Stefáns Jónsson, Að breyta fjalli. Því næst, Úr barndómi, eftir Jakobínu. Þessar bækur heilluðu mig og ég hef lesið þær oft. Og svo röðuðust þær upp ævisögurnar. Og til viðbótar bækur sem ég hef ekki lesið af eða lesið til hálfs, því það kom aldrei rétti tíminn. Í þessum flokki var bók Guðbergs, Faðir, móðir og dulmögn bernskunnar og bók Tryggva Emilssonar, Fátækt fólk sem ég byrjaði á en leiddist.
Ég ákvað sem sagt að taka mér tak og bætti fékk lánaðar bækur Þráins Bertelssonar, Einhvers konar ég og Ég ef mig skyldi kalla.
Nú hef ég lokið þessum tveim ólíku bókum og tekst á við Fátækt fólk.
Ég veit nú hvað það er með mig og ævisögur. Þær ganga nærri mér. En það er oft eðli góðra bóka.
Um bloggið
Bergþóra Gísladóttir
Nýjustu færslur
- 20.10.2023 Um Torfhildi Hólm
- 12.10.2023 Gráu býfugurnar hans Andrej Kurkov
- 29.6.2023 Tugthúsið
- 19.6.2023 Það er svo gaman að vera vondur
- 18.6.2023 Ferð til Skotlands og Orkneyja
Færsluflokkar
Tenglar
Baráttusamtök
Vinir og vandamenn
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 5
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 67
- Frá upphafi: 188995
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 47
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.