1.12.2012 | 22:11
Vandlæting dagsins
Af hverju hefur enginn fréttamaður úrskýrt fyrir mér hvað sé tvöfalt kjördæmaráðsþing (Framsóknarflokksins)? Eiga allir að skilja þetta? Og af hverju skil ég það þá ekki? Spurði félaga mína í bókbandinu í að þessu í dag og fékk tvær hugsanlegar skýringar. 1. Tvöfalt kjördæmaráðsþing: Er tvöfalt fjölmennara en venjulegt einfalt kjördæmaráðsþing. 2. Tvöfalt kjördæmaráðsþing: Eru tvö þing hvort á eftir öðru sama daginn. En ég hugsa: Gæti kannski verið að þau færu fram á sama tíma en væru aðskilin og kannski alls ekki á sama stað. Eru slík þing bara háð í Framsóknarflokknum?
Eiga allir að vita þetta og af hverju vissu vinir mínir það þá ekki? Ég tek það fram að annar viðmælandi minn á sterk tengsl inn í Framsóknarflokkinn.
Um bloggið
Bergþóra Gísladóttir
Nýjustu færslur
- 20.10.2023 Um Torfhildi Hólm
- 12.10.2023 Gráu býfugurnar hans Andrej Kurkov
- 29.6.2023 Tugthúsið
- 19.6.2023 Það er svo gaman að vera vondur
- 18.6.2023 Ferð til Skotlands og Orkneyja
Færsluflokkar
Tenglar
Baráttusamtök
Vinir og vandamenn
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.7.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 190339
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er nú ekkert flókið. Á hefðbundnu kjördæmisþingi eiga sæti einn fulltrúi fyrir hverja 10 félagsmenn í framsóknarfélögum kjördæmisins. Á tvöföldu kjördæmisþingi eiga sæti einn fulltrúi fyrir hverja 5 félagsmenn, þ.e. tvöfalt fleiri fulltrúar. Félögin sjá svo um að kjósa sína fulltrúa, ýmist á aðalfundum eða félagsfundum.
Sigurður (IP-tala skráð) 1.12.2012 kl. 23:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.