23.7.2011 | 21:19
De ensamma: Hĺkan Nesser
Ţótt ég sé hćtt ađ vinna og komin á eftirlaun, í langa fríiđ, finnst mér engu ađ síđur ađ ég eigi sumarfrí eins og annađ fólk. Er ekki einhver mótsögn í ţessu? Hvađ sem ţví líđur les ég trúlega aldrei meira en á sumrin. Ég hleđ bókum í kringum mig hvar sem ég er og hvert sem ég fer. Og mađurinn minn dregur líka í búiđ. Á Blönduósi lauk ég viđ ađ lesa De ensamma eftir Hĺkan Nesser (fékk hana í Norrćna safninu). Ég hef miklar mćtur á ţessum höfundi en hann er m.a. ţekktur fyrir bćkur sinar um lögregluforingjann Veteren. Hann svíkur aldrei.
Mér fannst sérstaklega áhugavert ađ lesa ţessa bók, ţví hún gerist í Uppsölum á áttunda tug tuttugustu aldar og síđan nokkurn vegin í nútímanum 35 árum síđar. En ég var einmitt viđ nám (og störf) í Uppsölum 1977- 1980.
Bókin fjallar um vinahóp, ţrjú pör sem kynnast og halda ţétt saman. Ţau fara saman í mikiđ ferđalag um Austantjaldslöndin (ţetta minnti mig á ferđalag sem viđ fórum saman tvö pör og barn) 1972 um Pólland og Ţýskaland). Ţau eru öll viđ nám í ólíkum fögum og fara ađ námi loknu ađ vinna. Ţađ hefur tognađ á samskiptunum og ţegar ţau ákveđa ađ hittast til ađ rifja upp gömul kynni, fremur ein stúlkan sjálfsmorđ. Ađ ţví er virđist. Hún stekkur fram af kletti sem er ţekktur fyrir gamlar sagnir um ađ fyrr á öldum hafi hann veriđ ćtternisstapi. Ţegar lík finnst af manni 35 árum síđar viđ ţennan sama stapa og úr ţessum gamla vinahópi vakna grunsemdir um ađ e.t.v. sé ekki allt međ feldu um lát ţessara tveggja einstaklinga.
Rannsóknarlögreglumađurinn Gunnar Barbarotti skođar máliđ og fćr til ţess dyggan stuđning rannsóknarlögreglukonunnar Evu Backman. Ţađ eru til vandađar lögregluskýrslu um fyrra mannslátiđ og ţađ vakna efasemdir um hvort ţarna sé um tvö sjálfsmorđ ađ rćđa eđa hvort annađ hvort ţeirra geti e.t.v. veriđ morđ. Eđa bćđi?
Bókin er á tveimur tímaplönum og höfundurinn fléttar á undraverđan hátt saman ţessar tvćr frásagnir og atburđarásin verđur ljóslifandi og trúverđug. Mér finnst ég ţekkja ţetta fólk og hefđi getađ mćtt ţeim á götu. Og mér finnst ég skilji líka vel hvernig Eva Backman og Gunnar Barbarotti velkjast í vafa um hvađ hafi gerst. Ţađ er líklega ekki hćgt ađ segja meira frá ţessari bók án ţess ađ skemma fyrir ţeim lesanda mínum sem á eftir ađ lesa hana. En hún er svo sannarlega ţess virđi.
Um bloggiđ
Bergþóra Gísladóttir
Nýjustu fćrslur
- 20.10.2023 Um Torfhildi Hólm
- 12.10.2023 Gráu býfugurnar hans Andrej Kurkov
- 29.6.2023 Tugthúsiđ
- 19.6.2023 Ţađ er svo gaman ađ vera vondur
- 18.6.2023 Ferđ til Skotlands og Orkneyja
Fćrsluflokkar
Tenglar
Baráttusamtök
Vinir og vandamenn
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.5.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 59
- Frá upphafi: 190017
Annađ
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 49
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.