Ef

D893FA04-A674-4203-A84C-D66C1175F984Ef

Ef pabbi hefði ekki farið suður á þing Framsóknarflokksins hefði ég líklega aldrei lært að hjóla. En það hefur verið mér dýrmæt kunnátta, bæði hér heima og erlendis. Hann keypti líka handa okkur spjald með mynd af Alþingishúsinu sem var hægt að klippa út (svona eins og dúkkulísur) og setja saman.Þetta  var sem sagt föndur. Líklega það fyrsta á ævi minni. Þess vegna hef ég alla tíð haft miklar mætur á þessu húsi, sérstaklega garðskálanum, sem var erfiðasta föndur verkefnisins. Pabbi sagði sig úr Framsóknarflokknum. Sem er önnur saga.

Hjólið var stórt svart karlmannshjól svo við börnin þurftum að hjóla undir stöng en það kom ekki að sök, þetta var spennandi.

Ástæðan fyrir því að faðir minn sagði skilið við Framsókn var afstaða flokksins til hersetu Bandaríkjaanna.  Hann var friðarsinni og vildi að landið væri hlutlaust.

Ástæðan fyrir því að ég rifja þetta upp er afstaða eða afstöðuleysi Vinstri grænna til hernaðar, þegar þeim finnst sjálfsagt og eðlilegt að kjarnorkuknúin herskip sveimi að vild „herraþjóðarinnar“ innan sem utan lögsögu Íslands.

Lokaorð

Ég veit mætavel að við búum í hörðum heimi en hvað er til ráða. Er  virkilega engin önnur leið fyrir sjálfstæð og fullvalda ríki en  að skríða undir væng  ránfuglsins, voldugasta  hernaðarríkis okkar tíma? Hvað um sjálfstæðið? Ég veit ekki. Það kann að sýnast gamaldags hugsunarháttur að finnast eitthvað athugavert við það. En í hjarta mínu finn ég að ég vildi helst af öllu tilheyra hlutlausri fullvalda þjóð.


Um bloggið

Bergþóra Gísladóttir

Höfundur

Bergþóra Gísladóttir
Bergþóra Gísladóttir
Ekki bráðung og hef komið víða við því ég er frekar dýr en planta.
Apríl 2023
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Nýjustu myndir

  • C9EB8261-F520-405B-9694-8235B40EF253
  • 290974CD-97E2-455E-9941-73B0F9997E6B
  • 800D7FD8-F6ED-4EB2-B141-653DA0360FE6
  • EA321379-6F18-48B5-A676-355C7607B59A
  • 0741CFBA-0D8F-4AA6-8F32-6676B4769C1E

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 79
  • Frá upphafi: 187333

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband