5.9.2015 | 15:01
Er fótbolti hættulegur?
Ég held að þjóðin hafi horft of mikið á fótbolta. Ekki kann ég neina aðra skýringu á því að fólk tapar ser í að draga líkingar úr heimi fótboltans inn í umræðu um stjórnmál og lýðræði. Ef fótboltalið stendur sig illa er þjálfaranum sagt upp og ef flokkur stendur illa í skoðanakönnun er eina ráðið að segja upp formanninum.
Frá mínum bæjardyrum séð leiðir þessi líking villur vega.
Fótbolti fylgir sýnum lögmálum, reglum og ég veit ekki hvort það sé hægt að tala um að þær séu ólíkar þeim reglum sem við höfum sett okkur um lýðræðislega pólitík. Á fótboltavellinum keppast liðin um að vinna boltann til að skora mörk. Óháður dómari gætir þess að farið sé að reglum.
Í pólitík velur þjóðin sér lið á fjögurra ára fresti til að vera með marga bolta á lofti. Þetta lið fær síðan að vera eitt inn á vellinum og skora eins mörg mörk og það hefur getu til. Því fleiri því betra. Eða hvað? Það er enginn utanaðkomandi dómari, nema ef til vill þjóðin sjálf í kosningum. Stjórnarandstaðan er ekki til að koma í veg fyrir markaskorun. Í því liggur villan sem þessi líking leiðir til.
En samlíkingar ganga nú oftast ekki upp.
Ég veit að ég er hér að hættusvæði. Ríki karlmannanna í sófunum þar sem þeim líður svo undur- vel. Enda eru það fyrst og fremst þeir sem fá að stýra umræðunni þegar kemur að því lýsa og draga ályktanir af því sem er að gerast á stjórnmálavellinum.
Stjórnmál snúast um markmið en ekki markaskorun.
Um bloggið
Bergþóra Gísladóttir
Nýjustu færslur
- 20.10.2023 Um Torfhildi Hólm
- 12.10.2023 Gráu býfugurnar hans Andrej Kurkov
- 29.6.2023 Tugthúsið
- 19.6.2023 Það er svo gaman að vera vondur
- 18.6.2023 Ferð til Skotlands og Orkneyja
Færsluflokkar
Tenglar
Baráttusamtök
Vinir og vandamenn
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.5.): 2
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 77
- Frá upphafi: 187270
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 73
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.