27.10.2016 | 13:08
Smjörklípuvélin
Í gamla daga,þegar ég var ung, framleiddum við stundum smjör á mínu heimili. Við áttum smjörmót og eigið framleiðslunúmer, til að neytendur gætu rakið hvaðan smjörið var. Það er langt síðan.
Löngu seinna lærði ég orðið smjörklípa. Það hefur með pólitík að gera og maður þarf hvorki mót eða númer til að útdeila slíku smjöri, enda ókeypis vara. Ég fór að hugsa um þetta þegar ég lenti í vandræðum með að finna smjörið á morgunverðarborðinu á hótelinu þar sem ég bý. Var þá bent á undarlegt tæki sem mótar litlar sætar smjörklípur, þegar ýtt er á takka. Hugsaði strax heim, svona tæki gæti nýst sumum í pólotíkinni.
Mér fannst svo mikið til tækisins koma að ég tók mynd af því.
En auðvitað er þetta vegna þess að hugurinn er á einhverju pólitísku svamli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 27. október 2016
Um bloggið
Bergþóra Gísladóttir
Nýjustu færslur
- 20.10.2023 Um Torfhildi Hólm
- 12.10.2023 Gráu býfugurnar hans Andrej Kurkov
- 29.6.2023 Tugthúsið
- 19.6.2023 Það er svo gaman að vera vondur
- 18.6.2023 Ferð til Skotlands og Orkneyja
Færsluflokkar
Tenglar
Baráttusamtök
Vinir og vandamenn
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.5.): 10
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 76
- Frá upphafi: 187457
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 66
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar