Konan kemur við sögu: Í tilefni dagsins

9B8B5248-167F-41B1-AE72-0EA588D77D6C
Konan kemur við sögu

Þessi bók kom mér á óvart, ég vissi ekki að hún væri til fyrr en hún birtist allt í einu á lista Hljóðbókavefsins yfir ný-innlesnar bækur. Í bókinni eru 52 greinar, þar sem konur koma við sögu. Þær eru mislangar og fjalla um allt mögulegt. Það er Árnastofnun sem ber veg og vanda af bókinni. Efni hennar kom fyrst  út 2015 á vef stofnunarinnar.  Hún er þeirra framlag til að minnast 100 ára kosningarréttar kvenna. Greinarnar komu síðan út á bók  2016.

 Bækur og svefn

 Loksins, loksins  hugsa ég, nú fær grúskarinn í mér  einhverja næringu. Ég var í miðju kafi við að lesa spennubók  (meira um hana síðar) og hugsaði mér gott til glóðarinnar að hafa  bókina  Kona kemur  við sögu sem kvöldlesningu. Til að komast í værð, sofna fljótar og fá betri svefn. Þetta snerist þó fljótlega við, bók Árnastofnunar varð að spennubók. Hin varð að bíða.  

Innihaldsríkur lestur

Greinarnar í bókinni eru mislangar og ólíkar hvað varðar efni. Sumar eru nálægt okkur í tíma, aðrar eru fjær. Auðvitað get ég ekki fjallað um 52 greinar í stuttum pistli en ætla að velja 3 til þess að væntanlegir lesendur fái nasasjón af því, hvað ég er að tala um.

Konan sem vildi mæla máli sínu: Eva María Jónsdóttir

Í greininni leitast Eva María við að svara því af hverju karlmennirnir í Svarfaðardal  voru svo vondir við Yngvildi fagurkinn. Ég hef sjálf gert nokkrar atrennur til að komast í gegn um Svarfdælu og varð satt að segja fegin að ég er ekki ein um að þykja hún strembin. Meðferð karlanna á þessari duglegu og vænu konu er óskiljanleg. Reyndar er fleira illskiljanlegt í þessari skrýtnu sögu. Það var gaman að lesa/hlusta á samantekt Evu Maríu en ég er ekki viss um hvort henni tókst fyllilega að skýra framferði Svarfdæla.

Handrit úr fórum Guðríðar   Jónasdóttur frá Svarfhóli: Gísli Sigurðsson

Hér segir Gísli frá því sem kom upp úr kökuboxi föðursystur hans, Ragnheiðar Kristjönu Baldursdóttur, sem hann fékk að gramsa í . Þar á meðal var umslag  merkt Guðríði Jónasdóttur móður Jóhanns Gunnars Sigurðssonar skálds, sem lést 1906. Þarna voru bréf sem farið höfðu á milli Guðríðar og Baldurs Sveinssonar  en Baldur og Jóhann Gunnar voru vinir og skólabræður. Eftir að Jóhann Gunnar lést skrifaði Guðríður Baldri bréf til að þakka honum  hversu vel hann hafði reynst Jóhanni í veikindum hans. Í kökuboxinu var auk þess handrit með ljóðum Guðríðar. Mér fannst ævintýri líkast að lesa þessa grein enda mikill aðdáandi ljóða Jóhanns Gunnars.

Heilög Margrét verndardýrlingur ljósmæðra og fæðandi kvenna:Ludger Zeevaert

Í þessari grein lýsir höfundur handriti í litlu broti sem notað var til  hjálpar fæðandi konum. Handritið skyldi vera spennt utan um læri  konunnar  meðan á fæðingu stóð. Auk þess að lýsa handritinu, rekur hann sögu dýrlingsins. Voðalega veit maður lítið um trúarbrögð fyrr á öldum.

Lokaorð

Framúrskarandi lesning. Ég á oft eftir að glugga í hana. Það er Ásdís Thoroddsen sem les, hún les vel að vanda og er ekkert að flýta sér.

Bókin er nokkuð löng, tekur 10 klukkustundir og 40 mínútur í aflestri. Auk þess hefur hún að geyma fjölda mynda, sem eru í senn fræðandi og til ánægju fyrir augað.

Myndun af valkyrjunni er tekin að láni úr bókinni


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bergþóra Gísladóttir

Höfundur

Bergþóra Gísladóttir
Bergþóra Gísladóttir
Ekki bráðung og hef komið víða við því ég er frekar dýr en planta.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • C9EB8261-F520-405B-9694-8235B40EF253
  • 290974CD-97E2-455E-9941-73B0F9997E6B
  • 800D7FD8-F6ED-4EB2-B141-653DA0360FE6
  • EA321379-6F18-48B5-A676-355C7607B59A
  • 0741CFBA-0D8F-4AA6-8F32-6676B4769C1E

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 187106

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband