Hannesarholt: Arngunnur Ýr og frænkur hennar

image

 

 

 

 

Í dag fór ég á opnun sýningar hjá Arngunni Ýr. Fallegar myndir af landinu okkar eins og Arngunnur Ýr sér það. Arngunnur vinnur að hluta til sem leiðsögumaður, þá gefst henni tækifæri til að sjá og skoða. Í mörgum þessum myndum er mikil birta. 

 

 

 

 

 

 ÆEn ég skoðaði ekki bara sýninguna þarna var frábær dagskrá, Bryndís Halla Gylfadóttir og Þórður Magnusson spiluðu verk eftir Ravel, Yrsa Sigurðardóttir las upp úr glæpasögu og Áshildur Haraldsdóttir eftir son Bach (ég man ekki nafnið). Og svo spjölluðu þær saman frænkurnar um Listina með stórum staf og svöruðu spurningum úrimage sal. 

 

 

 

 

En ég lét mér ekki bara nægja að njóta alls þessa. Ég skoðaði líka húsið Hannesarholt, ekki í fyrsta skipti. Ég verð alltaf svo glöð þegar ég kem í Hannesarholt, það er svo fallegt. Mikið dæmalaust er gaman hvernig til hefur tekist að gera upp þetta gamla hús. Auðvitað njóta þau sem tóku húsið að sér, að þetta hefur í upphafi verið fallegt hús. Ég vildi óska að fleiri gömul falleg hús fengju uppreisn æru.

                                      Þetta var góður dagur. 

 

 

Myndirnar voru teknar í Hannesarholti í dag 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bergþóra Gísladóttir

Höfundur

Bergþóra Gísladóttir
Bergþóra Gísladóttir
Ekki bráðung og hef komið víða við því ég er frekar dýr en planta.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • C9EB8261-F520-405B-9694-8235B40EF253
  • 290974CD-97E2-455E-9941-73B0F9997E6B
  • 800D7FD8-F6ED-4EB2-B141-653DA0360FE6
  • EA321379-6F18-48B5-A676-355C7607B59A
  • 0741CFBA-0D8F-4AA6-8F32-6676B4769C1E

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 187116

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband