Bara börn

image 

Ég hef veriđ ađ undirbúa mig fyrir síđasta bókafund ársins í öđrum af tveimur bókaklúbbun sem ég tilheyri. Ég er búin ađ lesa bókina sem viđ settum okkur fyrir á síđasta fundi sem var haldinn stuttu eftir andlát Günter Grass (f. 1927). Köttur og mús, varđ fyrir valinu. Ég hafđi ekki lesiđ hana áđur, en fyrir nokkrum árum las ég Blikktrommuna (í hinum bókaklúbbnum mínum). Á eftir fékk ég dellu fyrir Grass og reyndi ađ lesa Beim Häuten der Zwiebel á frummálinu en gafst upp og las hana á ensku, Peeling Onion. Mér finnst gaman ađ fá góđa listamenn á heilann. 

Bókin, Köttur og mús, er stutt...drengjasaga. Hún segir frá unglingum í menntaskóla í Danzig á 4.áratug 20. aldar, árum í ađdraganda stríđsins. Danzig er ađ hluta til pólsk og hefur stöđu fríríkis, reyndar bara ađ nafninu til ţegar hér er komiđ sögu. En drengirnir eru ekki uppteknir af ţví. Ţeir lifa í sínum unglingaheimi og í upphafi sögunnar eru ţeir uppteknir af ćvintýrum sem fylgja ţví ađ synda út í skipsflak í inn siglingunni og kafa niđur í vistarverur ţess.

Ţađ er kórdrengurinn Pilenz sem segir söguna, sjónarhorniđ er hans og stundum talar um hvađ vakir fyrir honum. Hann er ađ skrifa um Mahlke, sem er einn af ţeim drengjunum en samt alveg sérstakur. Lesandinn veit ađ ţađ er stríđ í uppsiglingu en drengjahópurinn er ekki upptekinn af ţví, ef frá er talinn áhugi ţeirra ađ kunna allt um orustuskip, kafbáta. Ţeir romsa upp úr sér nöfnum ţessara hertóla, stćrđ og búnađi, eins ég gćti ímyndađ mér ađ okkar gćtu gert ef ţeir vćru ađ tala um uppáhalds hljómsveitir.

En stríđiđ mallar allstađar undir  í frásögninni en ţetta eru bara börn. Nálgun höfundar er ađ ţví leyti sérstök ađ bókin er eins og skýrsla um ţennan dreng, Mahlke. Hann er  einn af ţeim en öđru vísi, hann ţarf ekki á ţeim ađ halda. Fullorđna fólkiđ er ađ vissu leyti utan viđ sjónarhorn ţessarar skýrslu og frásögnin varđ á vissan hátt spennandi af ţví lesandinn ţarf stöđugt ađ geta sér til um ţađ sem ekki er sagt og hvers vegna. 

En stríđiđ nćr ţeim, stríđshetjurnar koma til ţeirra inn í skólann og ţeir eru undirbúnir fyrir sína ţátttöku. Ţessir drengir útskrifast ekki út í lífiđ eđa til fara í háskóla. Ţeir útskrifast í stríđiđ. 

Günter Grass hefur veriđ gagnrýndur fyrir ţátttöku sína í stríđinu og fyrir ađ hafa ekki veriđ hreinskinn. Hann gekk í herinn 17 ára. Hann er orđinn 79 ára ţegar hann gerir grein fyrir ţessu í bókinni ,,Ađ flysja lauk". Nú ţegar ég hef lesiđ ţessar ţrjár bćkur, sem eru, Blikktromman, Köttur og mús og Ađ flysja lauk, finnst mér ţćr fjalla allar um ţennan sama efniviđ, undirbúning stríđs.

Ósjálfrátt bćtist ein frásögn enn viđ í huga mér, bók Marchel Reich Ranicki, Mein Leben. Lýsing hans á menntaskólaárunum í Ţýskalandi er hliđstćđa viđ ţessa frásögn. Ranicki er ađ vísu ekki í leikjaheimi, líf hans snýst um tónlist og bókmenntir. Ţegar hann er 18 ára er honum  allt í einu er honum kippt upp međ rótum, hann og fjölskylda hans eru send til Pólands ţegar pólskćttuđum Gyđingum er vísađ úr landi. Ţar bíđur ţeirra gettó. Ranicki tókst reyndar ađ sleppa ţađan og bjargađist.  

Allar ţessar bćkur um unglinginn sem stendur frammi fyrir stríđi hljóta ađ leiđa huguann ađ stríđumum okkar í dag. Enn eru unglingar sem fara í stríđ, ýmist viljugir eđa tilneyddir. Og heimurinn er fullur af flóttafólki. Viđ huggum okkur međ ađ stríđin séu langt í burtu en heimurinn er lítill. 


Bloggfćrslur 24. maí 2015

Um bloggiđ

Bergþóra Gísladóttir

Höfundur

Bergþóra Gísladóttir
Bergþóra Gísladóttir
Ekki bráðung og hef komið víða við því ég er frekar dýr en planta.
Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • C9EB8261-F520-405B-9694-8235B40EF253
  • 290974CD-97E2-455E-9941-73B0F9997E6B
  • 800D7FD8-F6ED-4EB2-B141-653DA0360FE6
  • EA321379-6F18-48B5-A676-355C7607B59A
  • 0741CFBA-0D8F-4AA6-8F32-6676B4769C1E

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 68
  • Frá upphafi: 187171

Annađ

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband